Kristilega skólahreyfingin, KSH, óskar eftir starfsmanni

posted in: Fréttir | 0

Kristilega skólahreyfingin, KSH, óskar eftir starfsmanni Óskað er eftir einstaklingi með djákna- eða guðfræðimenntun til starfa sem starfsmaður Kristilegu skólahreyfingarinnar, KSH, í 50% starf. KSH eru frjáls félagasamtök og er samstarfsvettvangur fyrir KSS (Kristileg skólasamtök) og KSF (Kristilegt stúdentafélag). Meginmarkmið hreyfingarinnar er að sameina kristna stúdenta og skólanemendur og leiða framhalds– og háskólanema til trúar á Jesú Krist. Skólahreyfingin og aðildarfélög hennar byggja á hinum hlutlæga (“objektiva”) hjálpræðisgrunni, sem lagður er af Jesú Kristi með friðþægingu hans fyrir syndir vorar og upprisu hans oss til réttlætingar, samkvæmt heilagri ritningu og játningarritum evangelísk-lútherskrar kirkju.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna mikið og náið með stjórnum KSS og KSF
  • Starfsmaður sinnir oft trúfræðslu í boðun og riti
  • Sálgæsla fyrir þátttakendur í starfinu
  • Sinna alþjóðlegum samskiptum
  • Fjáröflun starfsins, í samstarfi við gjaldkera stjórnar

Hæfniskröfur

  • Djáknamenntun eða sambærileg guðfræðimenntun
  • Reynsla af því að vinna með ungu fólki á aldrinum 15 – 25 ára
  • Reynsla af kristilegu æskulýðsstarfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Reynsla af því að skipuleggja viðburði og fundi æskileg
  • Reynsla af fjáröflun æskileg

Nánari upplýsingar

  • Umsóknarfrestur er til hádegis 1. desember 2014
  • Starfshlutfall er 50%
  • Æskilegt er að starfsmaður geti tekið til starfa fljótlega á nýju ári
  • Umsóknir skal afhenda í merktu lokuðu umslagi á þjónustumiðstöð KFUM og KFUK, Holtavegi 28 eða senda í tölvupósti á ksh@ksh.is
  • Upplýsingar veitir Rakel Brynjólfsdóttir, formaður stjórnar KSH, rakel@ksh.is, sími: 6610760